Notendanafn

Lykilorš

Takki

Fréttir

Myndir

Skrifaš: 06.May 2008 klukkan: 14:52 af: Helgi Mįr Siguršsson

Eins og þið hafið líklega tekið eftir þá hef ég verið að dunda mér undanfarið við að setja ævafornar myndir inn á síðuna. Þetta eru svo gamlar myndir að þær eru fyrir tíma digitalískra myndavéla, þar af leiðandi hef ég verið að skanna þessar myndir inn.


Mér var að detta í hug að ef þið eigið einhverjar gamlar myndir sem þið viljið koma á digitalískt form þá er ykkur velkomið að henda þeim í mig og ég gæti skannað þær inn fyrir ykkur.


Helgi


Mynd dagsins

Skrifaš: 19.Apr 2008 klukkan: 19:57 af: Helgi Mįr Siguršsson

Jón Hafliði hefur alltaf verið að mun verða um ókomna tíð fallegasti maður sem til er!


Jón Hafliði, fallegasti maður veraldar


rekóP

Skrifaš: 15.Apr 2008 klukkan: 14:41 af: Helgi Mįr Siguršsson

Póker verður spilaður næsta föstudagskvöld klukkan 20:30.


Sami staður og ávalt.


Spilaður verður No limit hold'em en ef menn eru hressir og kátir þá er möguleiki á að prufa aðrar útfærslur, t.d. Omaha.


Buy in 1000 kall og leyft verður re-buy að upphæð 500 krónum ef menn detta snemma út (man ekki nákvæmlega skilgreininguna á því hvenær má ekki kaupa sig inn lengur).


Buxnaleysi er skilyrði að venju.


Meldið mætingu í athugasemdum.


Teiti

Skrifaš: 11.Apr 2008 klukkan: 17:45 af: Sverrir Pįll Snorrason

Boðið verður til teitis á heimili mínu annaðkvöld (þ.e.a.s. laugardagskvöldið 12. apríl)


Allir Adolf meðlimir velkomnir!


Kv Sverrir


Tónleikar

Skrifaš: 02.Apr 2008 klukkan: 20:48 af: Sverrir Pįll Snorrason

Ég vil vekja athygla á því að hljómsveitin Thingtak ætlar að taka fram spariskóna og halda tónleika á bar 11 næstkomandi laugardagskvöld kl 11. Ég hvet alla til að mæta því þetta er ekki daglegur viðburður!


Með oss verða góðir gestir frá Ólafsvík en það er hljómsveitin Endless Dark.... hressir piltar þar á ferð.


Sumsé Thingtak á bar 11 kl.11, mættu eða deyðu!


p.s. frítt inn


Afmęliskvešja

Skrifaš: 31.Mar 2008 klukkan: 14:52 af: Helgi Mįr Siguršsson

Hann Nonni litli á afmæli í dag, kúturinn er orðin 27 ára og fær hann hér með heilmiklar hamingjuóskir. Ég ætla að vona að með nýju ári komi fleiri skemmtileg augnablik eins og þegar hann rak manninn úr sætinu á Tapas bar, það er eitt það besta sem ég hef séð.


Hér fær svo að fylgja með ein mynd af manninum þar sem hann er í sínu besta formi.


Nonni á góðum degi


Innflutningspartż ķ Kaupmannahöfn

Skrifaš: 14.Mar 2008 klukkan: 21:30 af: Bobbż

Hæhæ..  ef einhver er svo snjall að vera í kaupmannahöfn um páskana er þeim hinum sama boðið að vera viðstaddur í teiti.  Teitið er til heiðurs því að ég er fluttur til 3ja útlandsins.


Gjafir eru skilyrði fyrir inngöngu


Skemmtið ykkur vel annars á árshátíð..


Bobby out


Įrshįtķš Adolfs 2008

Skrifaš: 11.Mar 2008 klukkan: 13:11 af: Nonni Bergmann

Tilkynnist hérmeð að árshátíð Fjöllistahópsins Adolfs þetta árið (2008) verður haldin hátíðleg á laugardag næstkomandi, þann 15. mars, 2008


Mun gleðin hefjast stundvíslega klukkan 20:00 á Tapas bar.


Fordrykkur hefst kl. 19:00 en staðsetning hans er enn sem komið er óákveðin.


Til að áætla fjölda þurfa menn að skrá sig í dag (þriðjudag, 11. mars) eða á morgun (miðvikudag, 12. mars) með því að svara hérmeð ummælum.


Líklegt er að máltíðin kosti ca. 3500kr. fyrir utan drykki. Hverjum er það þó í sjálfsvald sett hversu mikið hann etur og þarmeð verð máltíðarinnar.


Įrshįtķš Adolfs

Skrifaš: 09.Mar 2008 klukkan: 20:41 af: Nonni Bergmann

Ég legg til að hún verði haldin um næstu helgi, laugardaginn 15. mars. Hvurjir eru sammála?


Póker

Skrifaš: 05.Mar 2008 klukkan: 18:54 af: Helgi Mįr Siguršsson

Fer ekki að koma tími á næsta póker?


Ég legg til að það verði einhverntíman í næstu viku, mér er svosum alveg sama hvenær, svo legg ég líka til að það verði ekki heima hjá mér, ég nenni ekki að taka allar þessar tölvur af stofuborðinu.


Einhver sem bíður sig fram?


Sjį nżrri fréttir Heim Sjį eldri fréttir
Nżjast į sķšunni:

Skrįšu žig inn til aš sjį hvaš er nżtt frį žvķ žś skrįšir žig sķšast inn