Notendanafn

Lykilorð

Takki

Fréttir

Ný Frétt

Skrifað: 05.Oct 2011 klukkan: 10:17 af: Nonni Bergmann

Helst í fréttum er það að engar fréttir hafa borist í næstum tvö ár.


Framtíðin er nú!

Skrifað: 13.Jan 2010 klukkan: 20:37 af: Nonni Bergmann

Nú er allt gert með Google Wave. Ef þú notar ekki Google Wave ertu að tapa á hverri sekúndu. Til að fá Google Wave skaltu senda beiðni á netfang mitt: bwibbwz (hjá) google (punktur) com


BAMM


Hvað er að frétta

Skrifað: 26.Aug 2009 klukkan: 09:51 af: Sverrir Páll Snorrason

Ég vil bara benda á að það er rúmlega ár síðan síðast var sett inn færsa á þessa síðu...


Gæti reyndar trúað því að það verði langt þangað til einhver les þetta hehehe en ég tek undir með því sem stendur í síðustu færslu


Partý!

Skrifað: 22.Aug 2008 klukkan: 01:24 af: Eva María

Ætlum við aldrei að halda partý?


Vel heppnað brúðkaup

Skrifað: 13.Aug 2008 klukkan: 13:52 af: Nonni Bergmann

Eins og Adolfum er von og vísa lukkaðist brúðkaup Jóns Hafliða með eindæmum vel.


Myndir úr brúðkaupinu og ferðalagi sem umkringdi það má finna á Facebook síðu Helga.


Buxnaþjófar

Skrifað: 18.Jul 2008 klukkan: 00:03 af: Arnviður Ævarr Björnsson

Það eru til ýmsar tegundir af þjófum og eru þeir mistöff. Bankaræningjar eru til dæmis frekar flottir en þjófarnir sem rændu mig í kvöld eru einfaldlega ekkert töff. Í kvöld var ég að keppa knattspyrnuleik sem er ekki mjög merkilegt, leikinn unnum við sem var hressandi. Þegar við komum inní klefa eftir leik var talsvert af mjöði inni klefanum en gleðinn sem sá mjöður veitti mér var skammvinn. Þegar ég settist þar sem ég skildi fötin mín eftir þá sá ég að buxurnar mínar voru ekki þar. Ég var ekki sá eini sem varð fyrir barðinu á þeim því tvennar aðrar buxur voru teknar. Ég legg til að allir buxnaþjófar verði hýddir á almannafæri og svo fari þeir á vondan stað. 


Jón Hlaupari hleypur maraþon!

Skrifað: 16.Jul 2008 klukkan: 15:22 af: Sverrir Páll Snorrason

Jón Hlaupari hinn mikli snillingur tjáði mér um daginn að hann væri að æfa stíft fyrir glitnismaraþonið með aðstoð gervihnatta. Hlaupið fer fram þann 23. ágúst n.k. og ég legg til að við verðum þar við endamarkið og hvetjum Jón áfram. Í fyrra var hann 5 klst. og 44 mín. með 42 kílómetrana þannig að við ættum að geta sirkað á hvenær hann kemur í mark. Það væri jafnvel hægt að búa til fána með mynd af manninum og hvatningarorðum. Mér finnst allavega að maðurinn eigi skilið að einhver standi með honum eftir öll þessi ár! Ég óska hér með eftir fólki í stuðningsmannalið Jóns Hlaupara...


Á góðri stundu í Grundarfirði

Skrifað: 03.Jul 2008 klukkan: 21:45 af: Helgi Már Sigurðsson

Á góðri stundu í Grundarfirði er bæjarhátíð sem haldin er síðustu helgina í júlí (26.-27.). Þessi hátíð er alger snilld, fór síðasta sumar og þetta var líklega lang besta djamm sumarsins. Bænum er skipt uppí 4 hverfi, gult, rautt, grænt og blátt og svo skreytir hvert hverfi sig í sínum litum. Á laugardagskvöldinu safnast svo liðin saman og marsera og mætast svo á einum gatnamótum, hvert úr sinni áttinni, minnir óneytanlega á einhverskonar styrjöld. Þarna er allskonar fólk, m.a. þessi:



Í fyrra vorum við í gula liðinu, í ár er stefnan að prufa það græna og vil ég hér með hvetja alla þá sem hafa ekkert betra að gera þessa helgi til að skella sér með. Stemmningin í bænum er mögnuð, allir fullir og allir glaðir, það er frítt að tjalda á öllum tjaldsvæðum bæjarins þessa helgi og þetta kemur til með að vera ekkert minna en legendary. Amk ef þetta fer jafn vel og í fyrra...



Opið Adolf mót í póker

Skrifað: 28.May 2008 klukkan: 14:45 af: Nonni Bergmann

Þann 5. júní verður haldið opið Adolf mót í póker. Allir Adolfar er velkomnir og þeim í raun skylt að mæta. Einnig eru vinir og vandamenn Adolfa velkomnir. Því fleiri þátttakendur því betra.


Mótið verður haldið á sama stað og vanalega og hefst stundvíslega klukkan 20:00.


Buy-in er 1000kr. og leyft er að kaupa sig aftur inn fyrir 500kr. fyrstu klukkustundina.


Leikmenn byrja með 3000 chips og eru blindir 25 og 50. Blindir hækka svo á 20 mínútna fresti, þannig að stóri blindur verði 50 -> 100 -> 150 -> 200 -> 300 -> 400 -> 500. Eftir að stóri blindur er orðinn 500 verða hækkanir þannig að bætt er inn ante, sem allir leikmenn leggja til í hverri hendi. Eftir þetta hækka blindir og ante til skiptis, ante um 50 chips en stóri blindur um 100 chips.


Sigurvegarinn fær vinninginn óskiptan nema ef spila þarf á meira en einu borði. Ef svo er fær 2. sætið buy-in sitt endurgreitt.


Vinsamlega tilkynnið hér þátttöku eða fjarveru og fjölda vina og vandamanna sem þér fylgja.


Reknir!!!

Skrifað: 11.May 2008 klukkan: 16:45 af: Tómas Hermannsson

Ég neyðist til að reka Helga og Arnvið. Ástæða þess að þeir eru reknir er  að þeir eru afglapar.


Sjá eldri fréttir
Nýjast á síðunni:

Skráðu þig inn til að sjá hvað er nýtt frá því þú skráðir þig síðast inn